Teik a vok in ðe væld sæd....
Skemmtilegar í skammdeginu
03.03.2008 13:08:54 / Didda

ERUM FLUTTAR

VIÐ ERUM FLUTTAR Á ...

WWW.HORKUGELLUR.BLOGGAR.IS

SJÁUMST ÞAR



» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 15:07:00 / Thorunn

Stuð að eilífu ..


Frík át.

Hey hvað segið gott elskulegu vinkonur ..?

Ég er skuggalega ánægð með lífið og tilveruna en ekki jafn ánægð með þessa síðu okkar.

Langar ykkur að breyta um vettvang setja þessa síðu á fasteignasölu ..??

Ég bjó til nýja síðu sem þarf ekkert endilega að vera ný síða.. Vil bara tjékka á ykkur.

Kíkið hér. ** horkugellurerukul.is**

kv. Kiiikiii


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 12:29:25 / Didda

http://thorunnthorarins.blogspot.com/

 

HÆ hó... er komin með ógeð af fyrri færslu

 

Kíkið á nýja bloggið hennar tótu - hefur að geyma mjög skemmtilegar endurminningar

 

P.S. - þið sem eruð í háskóla íslands ... ekki gleyma að kjósa Jónas okkar, hann er í framboði fyrir Röskvu 

(það var lítið Jónas minn)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 18:31:45 / Didda

Hver kannast ekki við þetta?

Hæ hæ stelpur mínar.

Ég gæti skrifað í klukkutíma stanslaust um makalausan seinni part síðustu viku, en gef ykkur styttri útgáfuna í þetta sinn.

Ég fór í Tofel (reyndar skrifað Toefl) próf á föstudaginn síðasta, svona til að hafa í bakhöndinni þegar við förum út. Þetta er svona internet-based próf sem fer þessvegna allt fram í tölvu. ég var búin að vera pínu stressuð út af þessu tölvu dæmi og var viss um að ýta á vitlausa takka eða eitthvað. Allavega, það kom svo í ljós að þetta er mjög imba-proof dæmi allt saman.

Þegar ég var búin með reading, listening og var að klára speaking hlutann, kemur allt í einu bara blár skjár og error dæmi eitthvað.

Já, tölvan sem ég var í krassaði, alveg týpískt. Þannig að það var hringt eitthvað neyðarsímtal til Hollands og ég sett í aðra tölvu. Ég var næstum því bara búin að labba út, nennti þessu ekki alveg. En svo gátu þeir endurræst prófið mitt og ég byrjaði aftur í speaking hlutanum.... frekar pirrandi.

En aðal-fréttirnar eru þær að ég hef tekið "pokann minn" í þvottahúsinu...... já, ég er búin að gefast upp á kellu, plús það að fjölskyldan er farin að vera hrædd um líf mitt og "yndislega sambýlismanns míns".

Ég ætla bara að gefa ykkur þetta klukkutíma langa "samtal" í stikkorðum:

- ég set í vél

- hún tekur úr henni og setur á borð/gólf

- ég dingla hjá henni og spyr hvað sé í gangi

- Eftir 15 mín. samtal rifjar hún það upp þegar Sævar hótaði henni ofbeldi

- í lokin segir hún mig vera annars flokks manneskju sem búi í kjallara

- ég strunsa í burtu

- hún dinglar hjá mér niðri og biðst afsökunar

- við tölum saman í hálftíma

- í lokin á því samtali segir hún mig vera með grjón í hausnum og svo sannarlega annars flokks manneskju

- ég loka hurðinni minni pent á hana meðan hún klárar

 

Já, vill einhver kaupa íbúðina mína ??? :)

Hlakka til að sjá ykkur hjá Sísí og Þórunni á laugardaginn

 

Kv. Annars-flokks-grjónaheilinn


» 12 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 11:57:00 / Sisi

Afmælisteiti

Hæææ elskurnar mínar

Ég ætla að halda upp á afmælið mitt ÞARnæsta laugardag, 26. janúar

Það er mæting hálf átta, átta heima hjá mér.. LÆKJARBERG 60 NEÐRI HÆÐ

Það er aldrei að vita nema að maður skelli vökva í bala og saxi niður ávexti, svo að allir fái vítamín og þorni ekki upp sem er auðvita algert lykilatriði fyrir glens og gaman.!

SKÁL
 
Þetta verður vonandi góð upprifjun á gamla góða tímanum hahaha t.d. heima hjá Evu Dís ;)
ATH... LESIÐ FÆRSLUNA HENNAR ÞÓRUNNAR FYRIR NEÐAN.. Þ.E. EF ÞIÐ ERUÐ EKKI BÚNAR AÐ ÞVÍ :haha:
Endilega látið vita hvort þið komist
...

» 8 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 13:32:47 / Thorunn

Hittingur hjá Tótu tönn ...

 

Jæja stúlkukindur .. saumó heima hjá mér á Hjallabrautinni - laugardaginn 26. janúar. 

Svona um hádegisbil - pínu bröns fílingur en ætli ég endi ekki á því að elda súpu fyrir ykkur.  

 

Veii veiii veii ..

 

 

 

http://www.ceonline.co.uk/image_uploads/81388_soup_kettle.jpg

 

 

Staðfestið endilega komu ykkar hér í kommentakerfinu fyrir neðan þessa færslu.

 

**KNÚS og fagrir fingurkossar***

 

Kv. Ungfrú Þórarinsdóttir 


» 10 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 13:52:35 / Didda

Dramatík í Vesturbænum

Gleðilegt ár stelpur mínar og takk fyrir þau gömlu.

Takk fyrir síðast líka, það var rosa gaman að sjá allar mæta.

En ástæða þess að ég er að skrifa er sú að við Sævar vorum heima í gærkvöldi um 10 leytið að horfa á bíómynd. Allt slökkt og kósý og svona. Svo allt í einu hringir útidyrabjallan, þið vitið uppi í andyri.

Sævar fer og svarar en enginn var þar. Svo 2 mín. síðar hringir á dyrabjöllunni okkar inni í stigagangi.

Þar fyrir utan stóð par um 25 ára aldurinn, sem búa víst í blokkinni. Stelpan öskrar nánast á Sævar:

Stelpan: "átt þú silfurlitaðan bíl fyrir utan?"

Sævar: "Já??!!??"

Stelpan: "Það er kviknað í honum, hann er að springa!!"

Við tökum að sjálfsögðu panikið og gerum okkur líkleg til að hlaupa út.

Þá segir strákurinn: "Hann er svona jeppi"

Við öndum léttar og segjum "já, nei, við eigum ekki jeppa"

Stelpan: "Þetta er ekki jeppi, hann er svona lítill silfraður"

Við dettum aftur í panikkið og hlaupum út. Þá blasir við okkur glænýr nissan jepplingur í ljósum logum í framrúðunni og maður úr hinni blokkinni að hella vatni yfir árangurslaust. Okkar bíll var einum bíl frá þessum.

(myndin er sviðsett)

Þvílíkt drama í einni blokk. Löggan og slökkviliðið mætti á svæðið og allt að gerast. Þá höfðu e-r tveir litlir 15 ára guttar verið að sprengja.

 

Já stelpur mínar, ef þið viljið hasar, flytjið þá í borg óttans :)

 

 

 

Nýárskveðjur, Didda


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.12.2007 12:09:39 / Didda

Sunnudagsboð

Gleðileg jól stelpur mínar

Það er saumó hjá mér á sunnudaginn 30. des. seinnipartinn.

Það er mæting kl. 15:00 og þið þurfið ekki að koma með neitt.

Meistaravellir 17, 107 Reykjavík

Ætla ekki bara allar að mæta??

 Hlakka til að sjá ykkur

Kveðja, Didda


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 13:09:42 / Eva R

Gleðileg Jól!

Vonandi hafiði það sem allra best yfir hátíðirnar stelpur!

Er ekki hittingur hjá Diddu á sunnudaginn? verður ekki full mæting?

 

 

ég ætla að horfa á þessa núna.. 

jol 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 21:55:07 / Eva R

smá uppfærsla

já ég á að vera að læra.. eins og örugglega nokkrar af ykkur.. vonandi allar.. því þá er ég með minna samviskubit yfir að vera að eyða tíma í að blogga. nei ok, líklegast fæstar.

Svona til að hrista upp í eggjastokkunum á diddu..þá er ein lærdómsbumbumynd sem ég var að taka

 

 

mér finnst hún risastór sko.. en svo þegar ég skoða myndir af gígju, evu dís og sísí um 9 mánuðina þá er þetta frekar slök kúla sko haha. en hún á alveg eftir að standa sig..

Ok ég er búin að monta mig núna.:haha:

kannski spurning að fara að læra..held að ég sé ekki með neinar fleiri bloggsíður sem ég get bloggað á.

:haha: 

 

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 20:41:06 / Thorunn

Viltu giftast mér Zach ef ekki, Sufjan vilt þú kannski giftast mér...?

 

Hvað segja bændur nú gott ..?

Er ekki allt gott að frétta þarna norðan heiða..?

 

 

The image “http://www.organicvalley.coop/img/our_story/farmers_index.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

r sjáið þið lífrænt ræktaða bændur - Hún Solla í grænum kosti fílar allt sem er lífrænt ræktað

 

Jæja hér með lýsi ég sjálfa mig sem steiktasta lauk Íslands... ég er svo rugluð og þreytt á því að það er ekki einu sinni fyndið.

Ég er búin að panta tíma fyrir okkur hjá jóðlarafélagi íslands.. 21 desember klukkan 16:30

- hverjar geta mætt..?

Ætlar einhver að dusta rykið af latex göllunum sínum og skella sér á Palla þann 21 des..?

 

Carol, Carol, Carol, Carol

 

Ég elska Zach Braff.. hann er svo elskulegur

 

Knúsar og fagrir fingurkossar til ykkar elsku fallegu dömur.

kv. spurningastelpan

 

e.s - mæli með jóladisknum hans Sufjan Stevens - Songs for christmas

 

http://asthmatickitty.com/images/sufjanstevens/sufjan_xmas2_dennyrenshaw.jpg

 

Bætt við : 8.des :

Sá þetta myndbrot á dd-unit, Didda þú yrðir einum of nett ef þú tækir svona dans í brúðkaupinu ykkar Sæsa :

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 21:59:25 / Thorunn

"Og stóri björninn sagði úlabba labba leii ...."

 

50 atkvæði - 0 auð og ógild

 

Svona skoðanakannanir virka greinilega vel .. víst að daman sem vermir annað sætið í þessari könnun hér að ofan er farin að baka köku inni í sínum ofni og hin daman sem vann þessa könnun er að fara að gifta sig .. bingó lottó segi ég nú bara.

...

Af því að ég er alltaf svo sniðug og skemmtilegt þá ætla koma með eina gátu..

Hvað er líkt með kossi og slúðri ..? 

Kv. Þórunn 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.11.2007 16:00:23 / Thordis

Gleðifréttir...

Elsku Didda og Eva Rós- enn og aftur til hamingju...vííí þið eruð svo fullorðins og æðislegar :haha:

» 18 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 11:51:23 / Ragnhildur

Hittingur í nóvember!

Hæ allar saman ég er eitthvað að reyna að finna einhverja góða dagsetningu fyrir hittinginn okkar í Nóvember. Hvernig hentar sunnudagurinn næsti s.s. 18 nóvember bara kl 15 eða 16????

 

Endilega kommentið, ég er nefnilega að fara til útlanda 25 nóvember til 5 des þannig að það eru ekkert alltof margar dagsetningar sem að koma til greina hjá mér.. Vona að þetta gangi upp ef ekki megið þið endilega koma með uppástungur:lol:

 

kveðja Ragnhildur 


» 15 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 17:36:03 / Didda

Allt að gerast í Vesturbænum

Hæ hæ stelpur mínar

Það er orðið eitthvað lítið um skrif á þessari ágætu síðu okkar þannig að ég ákvað að setja inn lítið samtal sem ég átti við nágrannakonu mína í fyrradag.

NB: Ég ætla að tileinka þessa færslu nýja þvottaefninu mínu, það er Ariel 30° og mér finnst það stórkostlegt, þó það fari ekkert sérlega vel með budduna.

Forsaga málsins er dáldið löng, kona (Frú "K" ) á 1. hæðinni segir okkur ekki eiga rétt á að nota þvottahúsið. Vonandi mun þessi stutti samtalsbútur gefur ykkur innsýn inn í málið:

Ég: Fer inn í sameiginlegt þvottahús að taka minn þvott úr sameiginlegu vélinni. Sé að þvottaefnið mitt er í 4. sinn komið niður á gólf (reyndar svo tvisvar fundið það í ruslinu). Viðkomandi einhleyp og barnslaus kona (kalla hana K) hefur skrifað miða á þvottaefnið mitt hvort hún mætti náðsamlegast þvo hér annað kvöld.

Ég: Dingla hjá henni og býð henni þvottahúsið, ég er búin í kvöld

K:Ég þvæ ekki eftir kl. 21, eins og sumir sem þvo hér allar nætur

Ég:Jájá (nenni ekki að rífast, hún hefur sannað það að hún hafi amk 3 persónuleika og er lygin)

K:Mér blöskraði svo þegar þessi "yndislegi kærasti þinn" réðst hérna á mig um daginn, maður er bara heppin að vera ekki laminn hérna á ganginum

Ég:Laminn!!! Það er enginn að lemja þig hérna

K:Ja, það liggur nú bara við.

....

Ég: Hvers vegna settirðu þvottaefnið mitt á gólfið? 

K: Þessi "frábæri kærasti þinn" var að saka mig um að hafa hent þvottaefninu ykkar (hann spurði hvort hún vissi eitthvað um það ). Mér fannst það bara svo hlægilegt að ég setti það á gólfið

... 

K:Þið þvoið langmest hérna í húsinu, þið eruð greinilega svona miklir sóðar

Ég: ORÐLAUS og brosi út í annað

K: Já, glottu bara.

...

K:Þið greinilega vitið ekkert í ykkar haus um íbúðarsamninga, þið getið bara farið niður og verið í þessari ömurlegu ósamþykktu kjallaraholu.

K: Ég þoli ykkur ekki og vil ekki sjá ykkur hérna. Ég ætla að biðja þig um að dingla aldrei upp á hjá mér aftur

 

Vildi bara deila með ykkur ánægjunni og gleðinni sem felst í því að búa í fjölbýlishúsi... amk þessu fjölbýlishúsi :)

 

 

Þessi kona hefur ekki tærnar þar sem frú "K" hefur hælana

 

Hlakka til að sjá ykkur í nóvember hjá Ragnhildi ekki satt

Kv. Sóðinn

 

» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17